Færsluflokkur: Bloggar

lol

þarf ekkert að segja meira. vert að fara pæla aðeins í þessum blessaða landsliðsþjálfara kannski, læt aðra dæma um það. verður fróðlegt að heyra hvað valtýr segir í þættinum á morgun. góðar stundir.
mbl.is Tap í Tel Aviv þrátt fyrir góðan lokakafla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

rétt hjá stráksa

ég er sammála macheda en ég tel að bæði hann og fernandes myndi gott jafnvægi við berbatov og rooney þegar þeir eru ekki að standa sig (þá sérstaklega berbatov, hann þarf að sanna sig fyrir mér allavega þetta tímabil). hann macheda eins og fernandes eru ungir og hungraðir en líka hæfileikaríkir eins og sást í æfingaferðinni þannig að þeir einfaldlega verða að fá smá spiltíma til að verða ennþá betri leikmenn og vonandi fá þeir það og þá meira en berba, það er bara mín skoðun.
mbl.is Macheda vonast eftir fleiri tækifærum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

rétt, vonbrigði

hann hefur aðlagast of hægt. hann hefur átt góða spretti inn á milli en hjá klúbb eins og Man Utd er það því miður ekki nóg. hann er virkilega klókur spilari og kemur sér oft í góðar stöður og hefur gott auga fyrir meðspilurum en hjá framherja þá eru það því miður mörkin sem telja þegar upp er staðið og í þeirri deild vantar heldur betur uppá. ef hann verður ekki seldur í sumar þá þarf hann að girða sig heldur betur í brók fyrir næsta tímabil. ferguson hefur meira að segja gert það sem hann gerir vel en það er að spila menn í form og hefur gert það vel með berba en hann bara hefur ekki nýtt það.
mbl.is Berbatov hefur valdið vonbrigðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

flott en

þó ég sé Man Utd maður þá verð ég nú að segja að mér finnst illa gengið fram hjá Frank Lampard. Hann er búinn að eiga frábært season enn og aftur en í þetta sinn ekki einu sinni í lið ársins, það finnst mér bara skandall. þessi umræða er reyndar búin að vera í gangi allt frá útnefningu liðsins en ég verð bara segja þetta einu sinni enn. góðar stundir.
mbl.is Rooney með enn eina viðurkenninguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja

Þá er bara fyrir þá að komast upp í úrvalsdeild. Ég sé fyrir mér að þeir þurfi eitt til tvö tímabil í championship til að koma sér fyrir með mannskap og annað svo geta þeir keyrt á þetta. Til haminju Leeds-menn.
mbl.is Beckford skaut Leeds upp í 1. deildina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verði þeim að góðu

Já verði þeim að góðu. Velkominn Besti Flokkurinn. Geti þetta lið ekki drullast til að skilja hvað er í gangi þá bara verði þeim að góðu og Besti Flokkurinn hirðir þessar næstu kosningar. Það er mín tilfinning. Og í öðrum kjördæmum en Reykjavík þá veit fólk ekkert hvað það á að kjósa og kýs því kannski bara ekki neitt, það er kannski bara allt í góðu.
mbl.is Guðlaugur hyggst ekki víkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétt mat

Ég myndi líka vilja hafa Hemma með mér í stríði ef svo ber undir. Ef Portsmouth hafa metnað til að fara aftur upp í úrvalsdeild þá verður Hemmi þar lykilmaður ásamt David James og þeirra sem hafa á þessu tímabili gefið allt til félagsins. Hemmi á allavega allt gott skilið og vonandi nær hann sér sem fyrst.
mbl.is Hermann vonast til að fá nýjan samning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú bara frétt úr skýrslunni

jahérna bara frétt frá mbl loksins frá skýrslunni. Ég var farinn að halda að mbl.is/mogginn væri að hundsa skýrsluna. Þetta er allavega eitthvað, betra en ekki neitt. Góðar stundir.
mbl.is Vísbendingar um refsiverða háttsemi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þungur róður

Já hann verður þungur róðurinn framundan hjá Liverpool-mönnum. Þeir þurfa núna að vinna alla sína leiki og einnig að stóla á að City, Tottenham og Aton Villa tapi stigum, ef þeir ætla að landa 4 sætinu. Ennþá möguleiki en fjarlægur að mínu mati. Ég segi að Tottenham landi þessu og City verða í 5 sæti Liverpool og Aston Villa keppa um 6-7 sæti.
mbl.is Tévez með þrennu gegn Wigan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sá Eiður sem við eigum að venjast

Dagurinn í dag var líklega frábær fyrir Eið Smára. Hann kom sterkur til baka en það er eitthvað sem ég vonaðist eftir og einnig hafði tilfinningu fyrir því hann hefur í gegnum tíðina alltaf gert sitt hvað sem tautar og raular. Fyrir mér er Eiður sannur maður, umdeildur vegna allskonar hluta en það skiptir mig engu. hann er kominn á þann aldur að það skiptir engu hann er fyrst og fremst atvinnumaður og það út í fingurgóma og mér finnst hann eiga hrós fyrir. enn og aftur var hann afskrifaður af mörgum en í dag afsannaði hann það og það inni á vellinum sem það á best heima. ef einhver hefur eitthvað að athuga þá vil ég benda á þessi orð hans frá í dag ég bara varð því þetta er eitthvað sem mér finnst vera talað af mikilli sannfæringu og einbeitni.

 „Ég kom hingað á miðju tímabili í mjög heilsteypt lið sem ver að gera góða hluti. Ég hef bara lagt mig allan fram á æfingum, beðið eftir tækifærinu og reynt að vera tilbúinn til að hjálpa liðinu þegar færi gefst." 

 Hér er linkur á fréttina af þess: http://visir.is/article/20100320/IDROTTIR0102/185290473/-1

Áfram Eiður. góðar stundir


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband