Horfið bil Bandaríkjanna

Já, horfið til bandaríkjanna. Þeir eru að fara atvinnuleiðina þar. Hvernig, jú þeir hafa vit á því að frysta vexti, eins og þeir voru að tilkynna og hafa skattprósentu á einstaklinga og fyrirtæki í lágmarki til þess að hjálpa þeim að ná sér upp eins hratt og mögulegt er svo þau geti ráðið fólk hraðar, þetta er ekki flókin hagfræði. hjá okkur er sambærilegur slaki hjá fólki þ.e. það er að halda að sér höndum, einnig hjá fyrirtækjum. skattalækkun myndi gefa svigrúm til þess að vaxa. einnig á að afnema verðtrygginuna strax því hún er það sem er að valda verðbólgunni núna vil ég meina, það er búið að vera það mikill slaki hjá okkur. ef hún er út úr myndinni fær líka seðlabankinn meiri áhrif þegar hann ákveður sig og þannig myndi hann kannski öðlast sama kjark og þeir í bandaríkjunum voru að sýna. það sem ég heyrði um daginn seðlabankastjóra segja að það væri lýklegt að vextir myndu hækka er alls ekki til þess fallið að slá á verðbólguna heldur þvert á móti tel ég að hún aukist.
mbl.is Óttast að fjárfestar hverfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband